Stórkostleg áskorun slær í gegn, foreldrar stafla Cheerios á höfuð sofandi ungbarna

Internetið kemur sífellt á óvart. Reglulega ná áskoranir gríðarlegri útbreiðslu og sú nýjasta er eflaust sú steiktasta. Hún kallast Cheerios-áskorunin og takmarkið er að ná að stafla upp sem flestum Cheerios-hringjum ofan á sofandi ungbörnun.

Áskorunin er jafn einföld og hún hljómar. Eina sem þú þarft er Cheerios og sofandi ungbarn. Þá geturðu byrjað að stafla hringjum ofan á höfði barnsins.

Foreldrar þessara barna hafa þegar náð góðum árangri

  grid-cell-2542-1466184818-14

Cheerios-áskorunina má rekja til vefsíðunnar Life of Dad. Patrick Quinn, stofnandi síðunnar, segist í samtali við Buzzfeed hafa fengið hugmyndina þegar hann var að leika við þriggja ára son sinn.

„Ég setti Cheerio-hring á nef hans og reyndi svo að stafla eins mörgum og ég gat. Svo mætti segja að boltinn hafi farið að rúlla,“ segir hann.

Myllumerkið #CheerioChallange heldur nú utan um hundruð mynda sem hafa borist og hluta af þeim má finna í þessari frétt.

sub-buzz-12177-1466177892-9

Sumir vinna með að stafla á mörgum stöðum í einu

sub-buzz-13785-1466178276-6

Quinn segir áskorunina erfiðari en hún lítur út fyrir að vera. „Það er mjög erfitt að halda aftur að hlátrinum á meðan maður staflar,“ segir hann.

sub-buzz-4212-1466184195-11

Vandræðalegt þegar barnið vaknar

sub-buzz-12195-1466178360-11

Á meðan sumir fara allt aðra leið

sub-buzz-32678-1466183201-9

Þetta er aðeins of fyndið

grid-cell-16909-1466183824-10  grid-cell-16909-1466183823-5

Endilega takið þátt og sendið okkur myndir!

Auglýsing

læk

Instagram