SUPER1 fyrst íslenskra verslunarkeðja með umbúðalaust grænmetis borð

SUPER1 hóf í dag, fyrst íslenskra verslunarkeðja, sölu á umbúðalausu grænmeti og ávöxtum í verslun sinni að Faxafeni 14.
Er um tilraunaverkefni að ræða og fyrirhugað er að umbreyta grænmetisborðum í öðrum verslunum á sama hátt ef vel gengur.

Eru allar vörur í grænmetis og ávaxtaborði án umbúða, ef frá er talið pappírsöskjur undir viðkvæmar vörur, og selt eftir vigt. Verslunin hefur í framhaldinu hætt notkun á plastpokum undir grænmeti og býður þess í stað upp á pappírspoka.

Sjá einnig: Bjóða upp á pappírspoka í stað plasts fyrir grænmeti og ávexti

Viðskiptavinir SUPER1 hafa kallað eftir minni plastnotkun og með þessu vill SUPER1 stuðla að aukinni umhverfisvernd og setja aukna pressu á birgja að huga að minni plastnotkun, en óhætt er að segja að meirihluti plast umbúða undir grænmeti og ávexti sé óþarfur.

Einnig er viðbúið að sala eftir vigt minnki matarsóun enda óþarfi að henda heilum pakkningum þrátt fyrir að lítill hluti sé skemmdur.

SUPER1 er ný verslunarkeðja sem rekur 3 verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Eru verslanirnar reknar í nánu samstarfi við norræna verslunarrisann REMA1000 sem leggur ríka áherslu á lífrænar vörur, minni matarsóun og umhverfisvernd.

Auglýsing

læk

Instagram