Það sem við vitum um árásina í Barselóna

Sendiferðabíl var ekið á hóp fólks á Römblunni í miðborg Barselóna í dag. Fjöldi sjúkrabíla er á staðnum en fólk er hvatt til að halda sig inni.

Hér er það sem við vitum um málið:

  • Einn er látinn og 32 særðir. Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar
  • Nærstaddir flýðu inn í verslanir og kaffihús í grenndinni þegar sendibíllinn ók inn í hópinn.
  • Sendiferðabíllinn var hvítur að lit og ökumaður bílsins stakk af.
  • Vígbúnir lögreglumenn ganga um götur borgarinnar
  • Lög­regl­an hef­ur sett upp vegatálma víða um borg­ina vegna fregna um að ann­ar bíll hafi tengst árás­inni. Guar­di­an segir frá þessu.
  • Spænska lögreglan staðfestir að árásin sé hryðjuverk og að sérstök viðbúnaðaráætlun vegna hryðjuverkaárása hafi verið virkjuð.
  • Spænsk­ir fjöl­miðlar segja að einn þeirra sem grunaður er um að hafa komið að ­árás­inni hafi verið skot­inn til bana í skot­b­ar­daga við lög­regl­una.
  • Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki hafa lýst árásinni á hendur sér.
Auglýsing

læk

Instagram