Unnsteinn Manúel áhyggjufullur: „Svona er tilfinningin að vera af erlendum uppruna og eiga von á barni á alvöru Íslandi”

Tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn Unsteinn Manúel Stefánsson lýsti yfir áhyggjum sínum af ástandinu á Íslandi í dag í pistli á Facebook síðu sinni í gær. Pistillinn hefur fengið mikil viðbrögð en honum hefur verið deild hátt í 800 sinnum.

Unnsteinn segir í pistlinum að íslenski stjórnmálamenn hafi aldrei verið jafn aftengdir þjóðinni og talar um að þeir séu orðnir að vörumerkjum.

„Undanfarin ár talar maður frekar um að kjósa Kötu heldur en flokkinn sjálfan og það er svolítið lýsandi fyrir pólitíkina á Íslandi. Við kjósum gott fólk,” segir Unnsteinn.

Hann segir að þetta tengist munstri sem sjáist allt um kring í samtímanum. Einstaklingar séu orðnir að vörumerkjum. Stjórnmálaflokkar séu ekki hátt skrifuð vörumerki.

„XXX Rottweiler hundar heita allt í einu Jói Pé og Króli líkt og VG heitir Kata Jak,” segir hann.

Á meðan stjórnmálafólk keppist við að sannfæra okkur um hversu gott það sé, þá þarf það ekki að vinna vinnuna sína.

Unnsteinn segir að íslenskir stjórnmálamenn séu ekki tengdir þjóðinni, hvorki vilja fólks né kjörum almennra borgara. Hann segir þetta vera mjög alvarlegt mál.

„Þegar ég var lítill var mér tjáð að á Íslandi væri ekki stéttaskipting. Það er kjaftæði, hún meira að segja eykst. En á meðan virðist þingið aðallega vera spá í því hvort mér sé treystandi til þess að nefna barnið mitt alveg sjálfur. Haha.”

Hann segir ástæðuna fyrir skrifunum vera að nú hafi stjórnmálamenn algjörlega ofboðið honum og þá sérstaklega VG, flokkurinn sem hann hefur kosið reglulega í gegnum tíðina.

„Eftir plús mínús 3 vikur eignast ég mitt fyrsta barn og fæ að heyra það í dag að þið séuð að fljúga verðandi mæðrum norður á land. Er ekki í lagi með ykkur? Ætlar þú Katrín Jakobsdóttir endanlega að rústa heilbrigðiskerfinu fyrir hönd Bjarna Ben?”

„Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað að bjóða einum helsta rasista Norðurlandanna í partý á Þingvöllum og kunna ekki einu sinni að biðjast afsökunar á því. Þið megið skammast ykkar margfalt. Þetta er ekki bara móðgun við alla krakkana af erlendum uppruna sem munu ekki kjósa ykkur aftur heldur móðgun við íslensku þjóðina í heild sinni,” segir Unnsteinn sem segir svo að svona sé tilfinningin að vera af erlendum uppruna og eiga von á barni á alvöru Íslandi, ekki séð úr fílabeinsturninum við Austurvöll.

Pistil Unnsteins má lesa í heild hér að neðan

Auglýsing

læk

Instagram