Vann rúmar sex milljónir fyrir 12 krónu getraunaseðil

Íslensk kona vann tæpar 6,2 milljónir á Sunnudagsseðlinum í getraunum þrátt fyrir að tippa aðeins á eina röð.

Konan lagði 12 krónur undir á röðina og var niðurstaðan 13 réttir og því vann konan tæpar 6,2 milljónir króna.

Konan býr í Reykjanesbæ en styður knattspyrnufélagið Val. Í tilkynningu frá Íslensku getraunum segir:

„Hún var með allt á hreinu konan sem vann tæpar 6.2 milljónir á Sunnudagsseðilinn í getraunum. Hún tippaði á aðeins eina röð á netinu og borgaði 12 krónur fyrir. Niðurstaðan var 13 réttir og tæpar 6.2 milljónir í hennar hlut. Íslenskar getraunir óska tipparanum til hamingju með vinninginn. Það er ljóst að ekki þarf að tippa fyrir háar upphæðir til að fá góðan vinning í getraunum.”

 

Auglýsing

læk

Instagram