today-is-a-good-day

Viðskiptavinur KFC fann huggun í því að sjá Hrefnu Sætran á staðnum: „Vá hvað ég er ánægð að sjá að þú borðar líka KFC“

Matreiðslumeistarinn Hrefna Rósa Sætran lenti í ansi skemmtilegu atviku þegar hún skellti sér á KFC á Selfossi í gær. Hrefna sem er einn vinsælasti og þekktasti kokkur landsins rakst á óþekkta konu sem kannaðist við hana og fann mikla huggun í því að rekast á jafn virtan kokk á KFC.

Hrefna greinir frá því á Facebook að hún hafi rekist á konuna á klósettinu á KFC á Selfossi í gær. Hún hafi spurt hana hvort að hún sé ekki Hrefna Sætran og því hafi hún svarað játandi. Svar konunnar í kjölfarið var stórskemmtilegt.

„Vá hvað ég er ánægð að sjá að þú borðar líka KFC. Það lætur mér líða miklu betur með að vera hérna,” sagði konan.

Auglýsing

læk

Instagram