Vin Diesel, The Rock og Jason Statham ekki væntanlegir til landsins með tökuliði Fast 8

Engin af stjörnunum í kvikmyndinni Fast 8 er væntanleg hingað til lands þegar tökur fara fram á næstunni. Þetta kemur fram í Fréttatímanum.

Á meðal leikara sem sem fara með hlutverk í myndinni eru Jason Statham, Dwayne Johnson, Michelle Rodriguez og auðvitað Vin Diesel, sem er einnig einn af framleiðendum.

Samkvæmt umfjöllun Fréttatímans verður kostnaður við leikmyndina eina og sér um eða yfir einn milljarður króna. Þá kemur fram að starfsfólk Universal hafi komið til landsins í vikubyrjun og að reiknað sé með því að tökurnar standi yfir frá því í febrúar fram í apríl.

Sjá einnig: 80 bílar fluttir til landsins í tengslum við tökur á Fast 8, tökur hefjast í byrjun apríl

Eins og Nútíminn greindi frá í vikunni vinnur framleiðslufyrirtæki Fast 8 að því að kaupa fjögur skip á Íslandi. Til stendur að sprengja eitt þeirra.

Fast 8, áttunda myndin í Fast and the Furious myndaflokknum, verður að hluta til tekin upp hér á landi. Fast and the Furious myndirnar njóta gríðarlegra vinsælda. Síðasta myndin í flokknum, Furious 7, er til að mynda sjötta tekjuhæsta kvikmynd allra tíma.

Vísir greindi frá því að tökur færu fram á Akranesi en áætlað er að þær hefjist 4. apríl. Heimildir Nútímans herma að tökur fari einnig fram á norðurlandi og að búið sé að bóka hótel við Mývatn í þrjár vikur.

80 bílar auka tækja og annars búnaðar verða flutt til landsins í tengslum við tökur kvikmyndarinnar Fast 8 á Akranesi í vor. Þetta kemur fram á vef Skessuhorns.

Skessuhorn greinir frá því að undirbúningur þar hefjist í mars og taki tvær til þrjár vikur. Áætlað er að tökur hefjist þar 4. apríl. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að mikil umsvif fylgi verkefninu.

Það er mjög ánægjulegt að fyrirtækið Truenorth hefur sett sér það markmið að eiga sem mest viðskipti við heimafólk þegar ráðist er í svona verkefni. Verkefnið mun þannig hafa áhrif á veitingahús á Akranesi og ýmsa verslun og þjónustu.

Umgjörðin verður Sementsreiturinn og byggingar aflagðrar verksmiðjunnar, bryggjusvæðið við Akraneshöfn og nágrenni Krókalóns, samkvæmt frétt Skessuhorns. Á næstunni er von á leikstjóra myndarinnar til að taka svæðið endanlega út.

Auglýsing

læk

Instagram