today-is-a-good-day

Birta rosalegt myndband frá tökum á Fast 8 á Mývatni

Framleiðendur kvikmyndarinnar Fast 8 hafa birt rosalegt myndband frá tökum myndarinnar á Mývatni. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Fast 8, áttunda myndin í Fast and the Furious myndaflokknum, var að hluta til tekin upp hér á landi. Fast and the Furious myndirnar njóta gríðarlegra vinsælda. Síðasta myndin í flokknum, Furious 7, er til að mynda sjötta tekjuhæsta kvikmynd allra tíma.

Á meðal leikara sem sem fara með hlutverk í myndinni eru Jason Statham, Dwayne Johnson, Michelle Rodriguez og auðvitað Vin Diesel, sem er einnig einn af framleiðendum.

80 bílar auka tækja og annars búnaðar voru flutt til landsins í tengslum við tökur myndarinnar.

Auglýsing

læk

Instagram