Hitafundur með Frosta Sigurjónssyni – Lesendur Nútímans fá að spyrja spurninga

Lesendum Nútímans gefst nú kostur á að senda inn spurningar til Frosta Sigurjónssonar í aðdraganda hitafundar Paradigm með honum sem haldinn verður næstkomandi föstudag á Vinnustofu Kjarvals.

Spurningar má senda inn með því að nýta Speakness athugasemdakerfið hér fyrir neðan, og verða valdar spurningar bornar upp á fundinum. Rétt er að benda á að hægt er að kjósa um gagnsemi spurninganna og hafa þannig frekari áhrif að hverjar verða fyrir valinu.

Auglýsing

Frosti sendi nýlega frá sér bók um loftslagsmál, Hitamál, þar sem hann færir rök fyrir því að núverandi stefna í málaflokknum sé óraunhæf og að tímabært sé að huga að öðrum leiðum. Í eftirmála bókarinnar segir hann meðal annars: „Skynsamlegri stefna felst í því að efla viðnámsþrótt samfélaga, styðja fátækustu þjóðir heims við að byggja upp innviði og heilbrigðiskerfi. Framfarir í tækni munu án efa draga úr losun á næstu áratugum, ekki vegna reglugerða, heldur vegna þess að ný tækni verður einfaldlega betri og ódýrari.“

Fundurinn mun sem fyrr segir fara fram næsta föstudag kl. 17:00 í Fantasíu, viðburðarsal Vinnustofu Kjarvals. Aðgangseyrir er 2.500 krónur og eru miðar seldir í gegnum MidiX.is.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing