today-is-a-good-day

Rjómalöguð sveppasósa með timjan og parmesan

Hráefni:

  • 2 msk smjör
  • 1/2 msk ólívuolía
  • 300g sneiddir sveppir
  • salt og pipar
  • 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 65 ml hvítvín
  • 125 ml kjúklinga eða grænmetissoð
  • 250 ml rjómi
  • 30g rifinn parmesan
  • 2 tsk ferskt timjan (eða 1/4-1/2 þurrkað)

Aðferð:

1. Hitið olíu og smjör á pönnu og steikið sveppina þar til þeir fara að taka á sig fallega gylltan lit, eða um 4-5 mín. Rétt áður en þeir eru klárir þá fer hvítlaukur saman við þá ásamt smá salti og pipar. Steikið áfram í um 1 mín.

2. Næst fer hvítvínið á pönnuna og sósan látin malla í um 1 mín. Bætið þá kjúklinga/grænmetis soði, rjóma og parmesan á pönnuna. Hrærið vel, lækkið aðeins hitann og leyfið þessu að malla á vægum hita í um 2-3 mín eða þar til sósan fer að þykkna.

3. Í lokin fer timjan í sósuna og salt og pipar eftir smekk. Njótið!

Auglýsing

læk

Instagram