Kjúklinga fajitas – Allt á einni pönnu!

Hráefni:

    • 2 tsk chilli krudd
    • 2 tsk cumin
    • 2 tsk oregano
    • 1 tsk reykt paprika
    • salt og pipar eftir smekk
    • 600 gr kjúklingabringur skornar í strimla
    • 1 rauð parika skorin í strimla
    • 1 gul paprika skorin í strimla
    • 1 rauðlaukur skorinn í þykkar sneiðar
    • 3 hvítlauksgeirar rifnir niður
    • 3 msk ólivuolía
    • 1/2 dl ferskt kóríander saxað niður
    • 2 msk lime safi
    • 6-8 tortillur

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 200 gráður. Leggið bökunarpappír á ofnplötu.

2. Blandið saman í skál: chilli kryddi, cumin, oregano, reyktri papriku, 1 1/4 tsk salti og 1 1/4 tsk pipar.

3. Dreifið úr kjúklingnum, paprikunni, lauknum og hvítlauknum á ofnplötunni. Hellið ólívuolíu yfir allt saman ásamt kryddblöndunni. Blandið mjög vel saman. Bakið í um 25 mín eða þar til kjúkilngurinn er elduður í gegn og grænmetið farið að mýkjast. Takið úr ofninum og blandið kóríander og lime safa saman við. Berið fram í tortillu með t.d. guacamole, fersku káli og tómötum.

Auglýsing

læk

Instagram