Súper einfaldur og góður kjúklingur í karrý

Hráefni/kryddblanda:

  • 1 1/2 tsk þurrkað kóríander
  • 1 tsk cumin
  • 1/2 tsk turmerik
  • 1/2 tsk fennel fræ, mulin
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1/4 tsk negull

Hráefni/karrýsósan:

  • 2 msk ólívuolía
  • 1 laukur skorinn smátt
  • 4 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 1 msk engifer rifið niður
  • 2 dl kjúklingasoð
  • 2 dl niðursoðnir tómatar, hella mesta vökvanum af
  • Salt
  • Cayenne pipar
  • 500 gr kjúklngabringur skornar í hæfilega stóra munnbita
  • 1 tsk maíssterka hrærð saman við 2 tsk vatn
  • 1 dl rjómi
  • 2 msk ferskt saxað kóríander, til skrauts

Aðferð:

1. Hrærið saman öll hráefnin í kryddblönduna í skál og leggið til hliðar.

2. Steikið kjúklinginn á pönnu þar til hann er eldaður í gegn og leggið hann þá til hliðar.

3. Hitið olíu í meðalstórum potti og steikið lauk í um 4-6 mín eða þar til að hann fer að mýkjast. Bætið þá hvílauk og engifer á pönnuna og steikið í 30 sek og hellið þá kryddblöndunni á pönnuna og steikið í aðrar 30 sek.

4. Hellið næst kjúklingasoði og tómötum saman við og náið upp suðu. Lækkið hitann örlítið og leyfið þessu að malla í um 5 mín. Nú er gott að stinga töfrasprota í pottinn og mauka sósuna þar til hún verður silkimjúk ( þá má einnig hella sósunni í matvinnsluvél, vinna hana þar og hella henni aftur í pottinni).

5. Kryddið sósuna til með salti og cayenne pipar eftir smekk. Færið næst eldaða kjúklinginn yfir í pottinn með sósunni og hrærið vel saman. Leyfið þessu að malla á lágum hita í nokkar mínútur. Ef sósan er of þunn þá má í lokin hella vatnsblandaðri maíssterkjunni saman við og hræra í 2-3 mín, þá þykknar sósan. Hellið rjómanum saman við í lokin og berið fram strax með fersku kóríander og hrísgrjónum.

Auglýsing

læk

Instagram