Klassísk frönsk lauksúpa – Toppuð með hvítlauks-ostabrauði!

Hráefni:

  • 1 msk ólívuolía
  • 2 msk smjör
  • 5 stórir laukar, skornir í þunnar sneiðar
  • 1 tsk salt (meira eftir smekk)
  • 2 msk hveiti
  • 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 1 dl þurrt hvítvín
  • 1 1/2 líter nautasoð
  • 1 tsk ferskt timjan
  • svartur pipar
  • 1 msk worcheshire sósa
  • 1 lárviðarlauf

Hvítlauks/ostabrauð:

  • 1 baquette brauð skorið í sneiðar
  • 1 msk smjör
  • hvítlauksduft
  • 200 gr cheddar (eða annar bragðmikill ostur) rifinn gróft niður

Aðferð:

1. Hitið ólívuolíu og smjör í stórum potti. Steikið laukinn og kryddið til með salti. Látið laukinn malla í smjörinu þar til hann verður karamelliseraður og hefur tekið á sig fallega gylltan lit. Hrærið reglulega í lauknum, þetta tekur um 30 mín.

2. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur og gylltur er hveitinu hrært saman við ásamt hvítlauk. Steikið áfram í um 2 mín.

3. Hellið þá hvítvíninu útí og hrærið saman við (gott er að nota viðarsleif og skafa vel úr botninum á meðan hrært er). Næst fer nautasoðið saman við ásamt timjan, svörtum pipar, worcheshire sósu og lárviðarlaufi. Látið þetta malla í 30 mín.

4. Þegar súpan hefur mallað í 30 mín er lárviðarlaufið veitt upp úr. Kryddið til með salti og pipar.

5. Hitið ofninn í 200 gráður og setjið bökunarpappír á ofnplötu. Raðið brauðsneiðunum á plötuna, smyrjið með smjöri. Kryddið með hvítlauksdufti og toppið með rifna ostinum. Glóðið brauðið næst í ofninum þar til osturinn verður fallega gylltur.

6. Skammtið súpunni í skálar og toppið hverja skál með einni til tveim ostabrauðsneiðum (fer eftir stærðinni á brauðinu og skálunum ). Berið fram strax.

Auglýsing

læk

Instagram