today-is-a-good-day

Ofnbakaður lax í Teriyaki sósu

Hráefni:

  • 4 laxafillet
  • 1 vorlaukur skorinn niður
  • 1 msk sesamfræ

Teriyaki Sósa:

  • 1 dl sojasósa
  • 1/2 dl appelsínusafi
  • 2-3 msk vatn
  • 2 msk hunang
  • 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 1 msk engifer rifið niður
  • 1 tsk chilli flögur
  • safinn úr 1/2 sítrónu
  • ½ msk hveiti

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 200 gráður. Blandið öllum hráefnum í sósuna saman í skál.

2. Raðið laxabitunum í eldfast form og hellið sósunni yfir hann. Bakið í um 12-15 mín eða þar til laxinn er eldaður í gegn.

3. Takið laxinn úr ofninum og toppið hann með vorlauk og sesamfræjum.

Auglýsing

læk

Instagram