Ofnbakaður lax með aspas og sítrónusmjöri

Hráefni;

  • 2 laxa fillet
  • 2 msk kjúklinga eða grænmetissoð
  • 1 1/2 msk sítrónusafi
  • 1 msk Sriracha sósa
  • 4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • Salt og pipar
  • 100 grömm smjör, skorið í litla kubba
  • 2 msk steinselja eða kóríander
  • 450 grömm ferskur aspas

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 220 gráður. Útbúið bakka úr álpappír og brjótið kantana upp. Hrærið saman í litla skál, soði, sítrónusafa og Sriracha sósu.

2. Setjið laxinn í álbakkann ásamt aspasinum. Kryddið laxinn á báðum hliðum með salti og pipar og dreifið hvítlauknum yfir hann. Hellið sírónublöndunni yfir bæði laxinn og aspasinn. Dreifið næst smjör kubbunum jafn yfir allt saman.

3. Setjið álbakkann á ofnplötu og inn í ofninn í um 10 mín eða þar til hann er eldaður í gegn. Toppið hann síðan með steinselju eða kóríander. Gott er að bera fiskinn fram með fersku salati.

Auglýsing

læk

Instagram