Risarækjur í kókos með chilli og hvítlauk

Hráefni:

  • 500 gr risarækjur
  • 4 msk ólívuolía
  • 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 1/4 tsk salt
  • 1/4 tsk chilliflögur
  • 1/2 laukur skorinn í sneiðar
  • 1/2 rauð paprika skorin í strimla
  • 1/2 gul paprika skorin í sneiðar
  • 2 1/2 dl kókosmjólk
  • 4-6 msk fiskisósa
  • 2 msk hnetusmjör
  • 2 msk lime safi
  • 1 msk púðursykur
  • 2 tsk engifer rifinn niður
  • 2 msk ferskt kóríander saxað niður
  • 1 vorlaukur skorinn fínt niður
  • ferskur rauður chilli skorinn í þunnar sneiðar

Aðferð:

1. Setjið rækjurnar í skál ásamt 1 msk ólívuolíu, hvítlauk, sjávarsalt og chilliflögum og blandið vel saman. Leyfið þessu að marinerast í 10 mín.

2. Hitið 1 msk ólívuolíu á stórri pönnu. Steikið lauk og papriku í um 5 mín eða þar til þetta fer að mýkjast. Færið þetta yfir í skál og leggið til hliðar.

3.  Bætið 1 msk af olíu á pönnuna og steikið helminginn af rækjunum í um 2 mín á hvorri hlið. Færið rækjurnar yfir á disk og steikið hinn helminginn af rækjunum og leggið til hliðar.

4. Blandið kókosmjólk, fiskisósu, hnetusmjöri, lime safa, púðursykri og engifer saman í skál og hrærið vel. Setjið laukinn og paprikuna aftur á pönnuna ásamt sósunni. Náið upp suðu og leyfið þessu að malla í um 5 mín.

5. Setjið rækjurnar saman við ásamt kóríander og blandið öllu vel saman. Berið fram með hrísgrjónum eða núðlum. Toppið með kóríander, söxuðum vorlauk og ferskum chilli.

Auglýsing

læk

Instagram