today-is-a-good-day

Rjómalagað kjúklingapasta með hvítlauk og parmesan

Hráefni:

  • 600 gr kjúklingur skorinn í litla bita
  • 2 msk ólívuolía
  • 1 laukur skorinn smátt
  • 1 pakkning pasta að eigin vali
  • 6-7 dl kjúklingasoð
  • 1 msk hvítlaukur rifinn niður
  • 1 msk ítalskt krydd
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk paprika
  • 1/4 svartur pipar
  • 30 gr smjör
  • 1 tsk oreganó
  • 2 1/2 rjómi
  • 140 gr rifinn parmesan
  • 110 gr rjómaostur
  • fersk basilka söxuð niður

Aðferð:

1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.

2. Steikið kjúklinginn upp úr ólívuolíu á heitri pönnu í nokkrar mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Takið hann af pönnunni og leggið til hliðar.

3. Steikið lauk upp úr smjöri þar til hann fer að mýkjast. Bætið þá hvítlauknum saman við og steikið áfram í um 1 mín. Hellið þá kjúklingasoði og rjóma á pönnuna og hitið að suðu. Bætið kryddunum saman við og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur. Bætið þá rjómaostinum og parmesan ostinum í sósuna og hrærið vel í þar til osturinn hefur bráðnað alveg.

4. Setjið kjúklinginn og pastað saman við sósuna og blandið vel. Berið fram með rifnum parmesan.

Auglýsing

læk

Instagram