Carole Baskin úr Netflix þættinum TIGER KING brjáluð út í eftirhermu úr SNL – myndband!

Carole Baskin er mjög sérstök manneskja þó ekki sé meira sagt – en hún varð heimsfræg eftir þættina Tiger King sem voru sýndir á Netflix. Margir telja að Baskin hafi átt þátt í að drepa eiginmann sinn en hún er þó saklaust þar til sekt er sönnuð.

Grínistinn Chloe Fineman gerði tilraun til að herma eftir Carole Baskin og þótti standa sig nokkuð vel. Þetta féll þó ekki í kramið hjá vinkonu okkar sem sagðist vilja slá grínistann utan undir fyrir þessa eftirhermu en hún tekur gríni ekki vel virðist vera.

Í öðrum fréttum þá er í bígerð dramaþáttaröð byggð á Tiger King og mun grínistinn Chloe Fineman að öllum líkindum fara með hlutverk Baskin í þáttunum þó ekkert sé endanlega staðfest.

Auglýsing

læk

Instagram