Louis Tomlinson sem er einn af söngvurum hljómsveitarinnar One Direction lenti í smá veseni á flugvelli. Fyrst mætti ljósmyndari og gaf honum og kærustu hans ekki frið. Louis fór á eftir ljósmyndaranum og reyndi að ná myndavélinni af honum og þá réðust tvær stelpur á kærustu söngvarans.
Hann fór og reyndi að koma kærustunni til bjargar og það endaði ekki betur en að kappinn var handtekinn. Þessi átök voru tekin upp á myndband og hægt er að horfa á það hérna fyrir neðan.
@EleanorJCalder @Louis_Tomlinson directioners are here for you #WeSupportLouis pic.twitter.com/FBFAzLjBf2
— Rachel? (@1d_babygirlss) March 5, 2017