Macaulay Culkin sló í gegn þegar hann var aðeins tíu ára gamall með hlutverki sínu í Home Alone. Hann varð strax heimsfrægur enda eru þessar myndir ennþá vinsælar jólamyndir í dag.
En það er ekki hægt að segja að frægðin hafi farið vel með Culkin enda sagði hann sjálfur að þetta hafi verið það versta sem gat komið fyrir hann. Culkin fór út í eiturlyf og fyrir nokkrum árum var hann farinn að líta svona út.
En nú er Culkin búinn að taka sig vel í gegn og heimildamenn segja að hann sé hættur öllu rugli. Það væri nú gaman að sjá hann í annari bíómynd ef hann hefur áhuga á því.