Bylgja Babýlóns grillar Hugleik: „Enginn hugsar jafn mikið um útlitið og tekst það jafn illa“

Í tilefni af 39 ára afmæli sínu í október fékk Hugleikur Dagsson vini sína til að grilla sig á sviðinu á Rósenberg. Grillið var í senn óvægið og hjartnæmt og fór þannig fram að vinir Hugleiks stigu á svið og léttu allt flakka um afmælisbarnið.

Nútíminn var á staðnum og eftir langt og strangt ferli þar sem alþjóðlegir lögfræðingar fóru yfir hverja einustu sekúndu kvöldsins til að skera úr um hvort grínið væri birtingarhæft, þá verður grillið birt (nánast) í heild sinni á fimmtudaginn.

Til að hita upp þá birtum við hér grillun Bylgju Babýlóns en hún kallaði Hugleik meðal annars Svein Andra uppistandsins og sagði engan hugsa jafn mikið um útlitið og Hugleikur með jafn slæmum árangri. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Þau sem stigu einnig á svið voru Ari Eldjárn, Snjólaug Lúðvíksdóttir, Frímann Gunnarsson, Lóa Hjálmtýsdóttir, Þórdís Nadia Semichat, Ragnar Hansson og Katrín Erlings.

Fylgist svo með á fimmtudaginn!

Auglýsing

læk

Instagram