Enginn vildi kaupa bílinn af þessum náunga þannig að hann bjó til svakalega auglýsingu

Hinn 25 ára gamli Rob Comeau er búinn að reyna að selja bílinn sinn í heilt ár. Bíllinn er Nissan Altima árgerð 2010, svartur á litinn og virðist bara vera í nokkuð góðu standi.

Rob á vin sem er kvikmyndagerðarmaður. Hann stakk upp á því að framleiða alvöruauglýsingu fyrir bílinn og fá atvinnumann til að lesa yfir hana. Úr varð myndbandið hér fyrir neðan. Búið er að horfa á það nánast 150 þúsund sinnum og Rob er búinn að fá nokkur tilboð í bílinn. Stórkostlegt!

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Guy makes epic commercial to sell old car!My buddy Rob’s been trying to sell his car for over a year now, so we made this kinda over-the-top car commercial to see if we can get a few offers on the table! Tag your friend’s that are in the market for a new car… or just need a good laugh 🙂

Posted by Chris Hau on Tuesday, February 9, 2016

Auglýsing

læk

Instagram