Fer Greta Salóme áfram í Eurovision? Sjáðu krúttlegan kettling spá fyrir um úrslit kvöldsins

Greta Salóme verður sextándi keppandinn á svið á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Alls flytja fulltrúar átján þjóða framlög sín á sviðinu í Svíþjóð í kvöld.

Við getum ekki beðið eftir að sjá hvernig þetta fer þannig að við fengum kettlinginn Eirík Hauksson til að spá fyrir um úrslitin. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

Eiríkur Hauksson er skyggn kettlingur, þannig að það má telja líklegt að hann reynist sannspár. Athugið að þessar fullyrðingar eru byggðar á sandi. En horfið endilega á myndbandið hér fyrir ofan. Það er of sætt!

Auglýsing

læk

Instagram