Hafþór Júlíus hundeltur af papparössum í Hollywood, sjáðu myndbandið

Kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson og kærastan hans, Andrea Sif Jónsdóttir, eru stödd í Los Angeles þessa dagana. Parið er hundelt af ljósmyndurum og í myndbandi sem var meðal annars birt á vef Daily Mail sést þegar Hafþór óskar eftir að fá að vera í friði.

„Við erum bara að versla, sé ykkur seinna,“ segir Hafþór. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Daily Mail birtir þessar myndir af parinu á röltinu og bolur Hafþórs vekur talsverða athygli.

Hafþór Júlíus er einn sterkasti maður heims og er orðinn heimsþekktur eftir frammistöðu sína sem Fjallið í þáttunum Game of Thrones

Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

https://youtu.be/HoJ8st7m924

Auglýsing

læk

Instagram