Mætast í æsispennandi „lip sync battle“: „Erum búin að koma okkur út í tómt vesen“

Leikararnir Edda Björg Eyjólfsdóttir og Gunnar Hansson mæta leikhópnum Kriðpleir í æsispennandi keppni í að varasyngja (lip sync battle) í Tjarnarbíói í kvöld klukkan 20. Viðburðurinn er haldinn af Unicef í tilefni af degi rauða nefsins sem verður á RÚV á föstudaginn.

Elísabet Inga kíkti á æfingu hjá liðunum tveimur og komst að því að mikill rígur er á milli þeirra. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Ástralski leikarinn, grínistinn og kabarettskemmtikrafturinn Jonathan Duffy stendur að viðburðinum ásamt Tjarnarbíói. Bæði lið hafa æft stíft síðustu daga og freista þess að sanna yfirburði sína fyrir landi og þjóð. Keppnin verður án efa hnífjöfn enda er þjálfari keppenda hin hæfileikaríka Margrét Erla Maack.

Dómarar verða Páll Óskar, Salka Sól og Hera Björk en þau leggja mat á „söng“ liðanna sem og sviðsframkomu. Sérstakur gestur verður dragdrottning Íslands, Gogo Starr, sem sýnir liðunum hvernig fagmennirnir fara að þessu. Kynnir kvöldsins verður Jonathan Duffy.

Keppnin er liður í undirbúningi dags rauða nefsins sem er langstærsti viðburður UNICEF á Íslandi. Átakið nær hámarki í beinni útsendingu á RÚV föstudaginn 9. júní þar sem landslið leikara, grínista, tónlistarmanna og fjölmiðlafólks býr til ógleymanlegt kvöld og skorar á áhorfendur að hjálpa börnum og gerast heimsforeldrar UNICEF.

Auglýsing

læk

Instagram