MR og Kvennó keppa í karókí fyrir úrslitin í Gettu betur, þjóðin velur sigurvegara

MR og Kvennó mætast í úrslitum Gettu betur í kvöld. Spennan er gríðarleg en ekki eins gríðarleg og hún var á Gauknum í gær þegar liðin mættust á karókísviðinu.

Fyrir MR flutti Katrín Agla Tómasdóttir stórsmellinn Oops!… I Did It Again sem Britney Spears söng svo eftirminnilega. Fyrir Kvennó flutti Óskar Örn Bragason Beach Boys-smellinn God Only Knows.

Spennan var kæfandi en við ætlum að leyfa þjóðinni að skera úr um sigurvegara. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan og taktu svo þátt í könnuninni hér fyrir neðan.


Auglýsing

læk

Instagram