Myndband: Elín Sif frumflytur nýtt lag í hljóðveri Sýrlands—„Upp að mér“

Í sumar fengu vefsíðan SKE.is og Stúdíó Sýrland fjórar söngkonur til liðs við sig. Hver söngkona samdi eitt lag sem var síðar hljóðritað í hljóðveri Sýrlands en úr varð svo myndbandsserían Sýrland Sessions þar sem sköpunarferlið var rætt og upptaka hvers lags fest á filmu. Að þessu sinni er það listakonan Elín Sif Halldórsdóttir lagið Upp að mér. Sjáðu þáttinn í spilaranum hér að ofan.

Lagið útsett af Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Gítarleikur var í höndum Reynis Snæs Magnússonar. Myndbrotin sem birtast í þættinum eru úr stiklu fyrir kvikmyndina Lof mér að falla en Elín Sif fer með eitt af aðalhlutverkum myndarinnar.

Í þættinum fer Elín um víðan völl og ræðir meðal annars ástæður þess að hún varð tónlistarkona. „Ég var að æfa ballet og stefndi upphaflega á feril í dansi. Svo meiddist ég fremur illa og neyddist til þess að hætta þegar ég var 15, 16 ára. Ég þurfti því að finna sköpunarþörfinni annan farveg en þar sem mamma er tónlistarkennari, í grunninn, kenndi hún mér hljóma á píanó—og kom tónlistin svolítið náttúrulega í kjölfarið,“ segir Elín.

Auglýsing

læk

Instagram