Sjáðu brot úr fyrsta þættinum í annarri þáttaröð af Hulla

Fyrsti þátturinn í annarri þáttaröð af Hulla verður sýndur á RÚV á morgun. Nútíminn birtir brot úr þættinum sem þú getur horft á hér fyrir ofan.

Hugleikur Dagsson segir að nýja serían verði aðeins sturlaðri en sú fyrri. „Hulli og félagar takast á við fegurðarsamkeppnahryðjuverk, trúarbragðafótbolta, auglýsingastofukúk og júróvisionsvindl. Eitthvað fyrir alla,“ segir hann.

Sérstakt forsýningarpartí fer fram í Bíó paradís klukkan 17 í dag og allir eru velkomnir. Fyrstu tveir þættirnir verða svo sýndir í bíósal klukkan 18.

Auglýsing

læk

Instagram