Smakkar íslenskt nammi með tilþrifum og hrækir því út úr sér: „Hvernig fokkar maður upp nammi!?“

Youtube-notandinn ComedyShortsGamer hefur birt myndband þar sem hann smakkar íslenskt nammi með miklum tilþrifum. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

ComedyShortsGamer nýtur mikilla vinsælda og er með um sex milljónir áskrifenda á Youtube. Myndbandið var sett inn um helgina og er þegar komið yfir milljón áhorf.

Hann fékk sendingu með allskonar íslensku nammi, svo sem fylltar lakkrísreimar, Bingókúlur, Þrist, Hraun og Djúpur. Flest á nammið sameiginlegt að vera með lakkrís og okkar maður er alls ekki hrifinn af honum.

Hann vorkennir raunar Íslendingum fyrir að þurfa að sitja upp með þetta nammi og hrækir flestu út úr sér um leið og það snertir varir hans. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram