Þrjár nautsterkar stelpur sýna okkur hvernig á að gera þetta, sjáðu myndbandið

Katla Ketilsdóttir, Freyja Mist Ólafsdóttir og Arnhildur Anna Árnadóttir eru nautsterkar og með háleit markmið. Katla ætlar að komast á heimsleikana í Crossfit og á Ólympíuleikana í ólympískum lyftingum. Freyja og Arnhildur hafa þegar náð mögnuðum árangri í lyftingum og æfa oft á dag til að bæta sig enn frekar.

Elísabet Inga, útsendari Nútímans, kíkti á æfingu hjá Kötlu, Freyju Mist og Arnhildi og forvitnaðist aðeins um hvað er á bakvið árangurinn í kraftlyftingum og ólympískum lyftingum. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram