Kírópraktor-klippur varla fyrir viðkvæma! Myndbönd af háum smellum í baki eru vinsæl hjá sumum á meðan aðrir geta alls ekki horft -myndband!

Kírópraktorar hafa aldrei verið almennilega viðurkenndir af læknavísindum en fjöldi fólks segist hafa fengið lausn sinna mála hjá Kirópraktorum. Svo lengi sem fólk er fullorðið, tekur eigin ákvarðanir og er sátt við niðurstöðuna þá munu Kírópraktorar hafa nóg að gera.

Sumir elska að heyra smellina þegar losnar um stífa spennu í líkamanum og eru heilu myndböndin tileinkuð þessari iðju. Fyrir viðkvæma er þetta eins og að horfa á hryllingsmynd þegar Kírópraktorinn snýr fólk úr hálslið (Lítur þannig út fyrir óvana).

Auglýsing

læk

Instagram