Vandræðaskáld fagna fimm ára afmæli og halda fullorðinsbarnaafmæli

Kvæða- og leik­lista­r dúettinn Vand­ræða­skáld skipa þau Sesselía Ólafs­dóttir, leik­kona og leik­stjóri, og Vil­hjálmur B. Braga­son, leik­skáld og rit­höfundur.

Þau deila reglulega hressum og skondnum frumsömdum lögum um málefni líðandi stundar á Facebook síðu sinni. Um þessar mundir fagna þau 5 ára samstarfsafmæli sínu og ætla að því tilefni að halda svokallað fullorðinsbarnaafmæli á Græna Hattinum á Akureyri, fimmtudaginn 24. september.

Þar ætla þau að gera upp sögu Akureyrar í eitt skipti fyrir öll og spila ný og nýleg lög í bland við brot af því besta frá síðustu fimm árum, eins og segir í tilkynningu frá þeim.

Nálgast má miða á viðburðinn á graenihatturinn.is

Á fimmtudaginn samdi ég lag, en það er löngu orðið tímabært að fleiri semji…#vandræði #hjúkrunarfræðibunugangur #bláalónlíyou #ættuaðcovidabetur

Posted by Vandræðaskáld on Sunnudagur, 5. apríl 2020

Auglýsing

læk

Instagram