Kjúklingabringur í hvítlauks-sveppasósu

Þetta miðvikudagskvöld er komið að safaríkum kjúklingabringum í hvítlauks-sveppasósu. Uppskriftin er í boði Gestgjafans en við hjá Nútímanum eigum í frábæru samstarfi við matreiðslumenn tímaritsins. Ef þú elskar að elda mat þá mælum við hiklaust með áskrift að Gestgjafanum en hægt er að næla sér í hana hér!

En vindum okkur þá í hráefnin og aðferðina sem er notuð til að framreiða þennan ljúffenga kjúkling sem er fullkominn á matardisk heimilisins hvaða dag vikunnar sem er!

Hráefni:

  • 2-3 kjúklingabringur, skornar í tvennt langsum
  • 3 msk ólívuolía
  • salt og pipar eftir smekk
  • 3 msk smjör
  • 5 dl niðurskornir sveppir
  • 1 laukur, skorinn smátt
  • 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 3 msk smjör
  • 3 dl kjúklingasoð
  • 1 1/2 dl rjómi
  • 1 tsk ferskt saxað rósmarín

Aðferð:

1. Hitið ólívuolíu á pönnu. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar. Steikið kjúklinginn í 5-7 mín á hvorri hlið. Takið hann til hliðar af pönnunni.

2. Bræðið 3 msk af smjöri á pönnunni og steikið sveppi og lauk í um 5-7 mín. Bætið þá hvítlauknum saman við og steikið áfram í 1-2 mín.

3. Hrærið hveitið saman við ásamt kjúklingasoði, rjóma og rósmarín. Hrærið vel saman þar til sósan fer að þykkna. Færið þá kjúklinginn  yfirá pönnuna og leyfið honum að hitna í sósunni í 2-3 mín. Berið fram með hrísgrjónum og salati.

Auglýsing

læk

Instagram