Transumræða fjarlægð úr íbúahópi á Seltjarnarnesi – „of heit kartafla“

Heitar deilur brutust út í Facebook-hópnum Íbúar á Seltjarnarnesi í vikunni þegar færsla um transmál og börn var fjarlægð af umsjónarmönnum. Færslan, sem vísaði í finnska langtímarannsókn á kynskiptingu barna og ungmenna, kveikti harða umræðu um mörk umræðufrelsis og hvað eigi heima í slíkum íbúahópum.

Gunnlaugur Jónsson setti inn færslu með hlekk á rannsókn sem nær til áranna 1996–2019, er alþjóðlega viðurkennd og hefur verið til umfjöllunar á norska vísindavefnum forskning.no. Hann taldi niðurstöðurnar eiga erindi í umræðu um transfræðslu í skólum. Færslan var þó fjarlægð skömmu síðar, sem varð til þess að umræðan færðist á hærra hitastig.

Auglýsing Auglýsing

Harðar ásakanir og gildishlaðið orðalag

Viðbrögð í hópnum voru heiftug. Katrín Oktavía gagnrýndi færsluna og sagði Gunnlaug fara fram með „samsæriskenningar“ og „troða greinum og vídjóum upp á fólk sem er ekki sammála til að reyna að opna augun okkar.“

Björn Gunnlaugsson, skólastjóri Laugarnesskóla, tók enn fastar til orða og skrifaði að hópurinn ætti ekki að „vera vettvangur fyrir transfóbískar deleringar um að börnum standi á einhvern hátt ógn af því að fá fræðslu sem fábjánar eins og þú hefðuð gott af að fá góðan skammt af.“

Þórður Sveinsson sakaði Gunnlaug um mannvonsku og sagði: „Fólk með svona handónýtar skoðanir eins og þínar elskar að geta falið sig á bakvið það þegar kemur einhver ein fræðigrein sem styður við ruglið sem þau eru að halda fram… Það er gripið í hvert einasta hálmstrá til þess að halda á lofti mannvonskunni.“

Sóley Sigurþórs tók í svipaðan streng og sagði Gunnlaug „einfaldlega ekki treystandi fyrir því að ræða þetta málefni af heilindum“ og bætti við að færslan hefði verið „transfóbískt lýðskrum“ og því rétt að fjarlægja hana.

Sumir veigruðu sér við að taka þátt

Ekki voru þó allir íbúar jafn harðorðir. Sumir töldu umræðuna eiga fullt erindi, sérstaklega í ljósi tengingar við skólastarf og velferð barna, en sögðust síður vilja taka þátt vegna tónsins sem ríkti í umræðunni.

Gunnlaugur sjálfur segir að hann hafi fengið skilaboð frá íbúum sem studdu að umræðan færi fram, en hefðu ekki treyst sér til að tjá sig opinberlega „vegna ofstopa fárra“.

Umsjónarmaður: „Á ekki heima í íbúagrúbbu“

Margrét Hugrún, einn umsjónarmanna hópsins og stofnandi hans, sagði að hún hefði ekki séð upprunalegu færsluna. Hún útskýrði þó afstöðu sína skýrt og sagði umræðuna um transmál vera „mjög stórt existensíalískt fyrirbæri sem á ekki heima sem topic í íbúagrúbbu.“

Hún viðurkenndi að velferð barna ætti erindi í hópinn, en taldi að „transpælingar“ væru „allt of heit kartafla“ fyrir vettvanginn.

Auglýsing Auglýsing

læk

Auglýsing Auglýsing
Auglýsing Auglýsing