Kærastinn snýr aftur

Array

Trommarinn Bassi Ólafsson vakti gríðarlega athygli með myndböndum sínum sem hann byrjaði að setja á Facebook í janúar í fyrra. Hann kallaði sig kærastann og náði á stuttum tíma að safna meira 26 þúsund lækum á Facebook.

Lítið hefur spurst til kærastans undanfarið þó Bassi sjálfur sé alltaf á trommunum. Hann trommaði til dæmis í þáttunum Óskalög þjóðarinnar á RÚV í vetur og hefur nú snúið aftur í auglýsingu Símans.

Þar leikur Bassi trommuleikarann Friðgeir sem getur ekki beðið eftir að komast heim að horfa á sjónvarpið með kærustunni.

Auglýsingin er hér og það skal tekið fram að Nútímanum var ekki greitt fyrir þessa umfjöllun. Okkur fannst þetta bara skemmtilegt.

Auglýsing

læk

Instagram