Tónlistarkonan Laufey hjálpar vinsælum áhrifavaldi að smakka íslenskt snarl

Tónlistarkonan vinsæla, Laufey, er gestur áhrifavaldsins vinsæla Shan Rizwan í stuttu myndbandi en hann heldur úti vinsælli síðu á Youtube og er með rúmlega hálfa milljón fylgjenda.

Í myndbandinu fer kynnir Laufey íslenskt sælgæti og íslenska smárétti og þau smakka þetta allt saman og gefa einkunn eftir hversu vel þeim líkar bragðið.

Laufey hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu og unnið til fjölda tónlistarverðlauna fyrir tónlist sína.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram