Leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi, Kemi Badenoch, gagnrýnir harðlega áform Verkamannaflokksins um að kenna öllum skóladrengjum að bera virðingu fyrir konum og stúlkum.
Hún segir aðgerðirnar vera afvegaleiðingu frá raunverulegum orsökum ofbeldis og kvenfyrirlitningar og telur stjórnvöld ættu frekar að beina sjónum að löggæslu, brottvísun erlendra glæpamanna og innflytjendum frá menningarheimum sem „virða ekki konur“.
„Ekki 11 ára drengir sem fremja ofbeldið“
Forsætisráðherrann Keir Starmer tilkynnti á miðvikudagskvöld að allir skóladrengir í Bretlandi yrðu fræddir sérstaklega um samþykki, heilbrigð sambönd og kynferðislegt ofbeldi.
Markmið stjórnvalda er að fækka ofbeldisverkum gegn konum og stúlkum um helming á næstu tíu árum.
Badenoch segir að með þessu sé ábyrgðin ranglega færð yfir á börn.
„Staðreyndin er sú að það eru ekki 11 ára drengir í skólum sem fremja ofbeldi gegn konum og stúlkum,“ segir hún og bætir við að árangur náist aðeins með aukinni viðveru lögreglu, harðari brottvísunum og skýrum skilaboðum til þeirra sem brjóta af sér.
Segir stefnu mótaða af sjónvarpsþáttum
Badenoch heldur því einnig fram að hugmyndir Verkamannaflokksins séu sprottnar af menningarumræðu fremur en gögnum og rannsóknum.
Hún vísar þar meðal annars til Netflix þáttarins Adolescence, sem fjallar um 13 ára dreng sem er handtekinn grunaður um morð á bekkjarsystur sinni.
„Þetta er algjör truflun. Sumir í Verkamannaflokknum horfðu á Adolescence og ákváðu að einblína á það,“ segir hún.
Í viðtali við BBC líkti hún þessu við að þurfa ekki að horfa á læknaþátt til að skilja stöðu heilbrigðiskerfisins.

Varað við að gera drengi að vandamálinu
Í grein í The Telegraph varar Badenoch við því að aðgerðir stjórnvalda geti haft þveröfug áhrif.
Hún segir að ef drengjum sé sagt frá unga aldri að þeir séu vandamálið skapist ekki virðing heldur gremja, bakslag og jafnvel hætta á róttækni.
„Ef þú djöflavæðir drengi frá unga aldri skaparðu ekki lausn heldur nýjan vanda,“ skrifar hún.
Kennarar þjálfaðir til að greina kvenfyrirlitningu
Á sama tíma hefur ríkisstjórn Starmer kynnt nánari útfærslu á stefnu sinni.
Samkvæmt henni munu kennarar fá sérstaka þjálfun til að greina merki kvenfyrirlitningar hjá drengjum og grípa inn í áður en slík viðhorf þróast í ofbeldishegðun.
Nemendur verða fræddir um samþykki, hættur við dreifingu nektarmynda, heilbrigðar fyrirmyndir og skaðlegar mýtur um konur og sambönd.
Drengir sem taldir eru í „mikilli áhættu“ munu fá aukinn stuðning og geta verið sendir í sérstök námskeið til að vinna gegn neikvæðum viðhorfum.
Keir Starmer segir að stjórnvöld ætli að grípa inn fyrr.
„Eitruð hugmyndafræði er að festa rætur snemma og of oft er hún látin óáreitt. Við erum að styðja kennara og stöðva skaða áður en hann verður að ofbeldi,“ segir hann.
Innflytjendur og tölur um ofbeldi
Í þingumræðum hvatti íhaldsþingmaðurinn Katie Lam stjórnvöld til að birta gögn um þjóðerni og stöðu innflytjenda meðal dæmdra kynferðisbrota, til að hægt væri að ræða áhrif fjöldainnflutnings fólks á ofbeldi gegn konum á heiðarlegan og upplýstan hátt.
Ráðherrann Jess Phillips hafnaði þeirri nálgun og sagði ofbeldi gegn konum vera útbreitt í öllum samfélögum.
„Meirihluti þeirra mála sem við erum að fást við snýr að fólki sem er fætt hér í landinu og beitir annað fólk sem er fætt hér ofbeldi,“ sagði hún.