Leiðsögumaður varar við leigubílasvindli: Ferð frá Skarfabakka að Hörpu kostaði 7.500 krónur en á að kosta 3.000

Baráttumaðurinn sem kallar sig Taxý Hönter á samfélagsmiðlinum X vakti athygli á dæmi um meint leigubílasvindl, þar sem ferð frá Skarfabakka að Hörpu kostaði 7.500 krónur.

Samkvæmt hans mati ætti ferðin að kosta um 3.000 krónur en hann starfar sem leigubílstjóri.

Auglýsing

Í færslu sinni segir hann þetta vera „daglegt brauð“ á bílastæðum undir umsjá Faxaflóahafna og ISAVIA.

Þá sakar hann fjölmiðla á borð við Kveik, Morgunblaðið, DV, SÝN og Heimildina um að hafa vitað af málinu frá sumrinu 2023 án þess að hafa fjallað um það.

50 evrur fyrir innanbæjarferð

Með færslunni fylgir hlekkur á myndband myndband þar sem leiðsögumaðurinn Óli Öder ræðir við erlendan ferðamann sem segjast hafa verið blekkt af leigubílstjórum.

Konan segist hafa borgað 50 evrur fyrir ferð frá Norwegian Cruise-höfninni að strætóbiðstöð við Hörpu, sem er ferðin sem Taxý Hönter vísar í.

„So where did you go and from where?“ spyr Óli í myndbandinu.

„I went from the Norwegian Cruise Board to the bus stop 4 by the Harpa and it was 50 euro,“ svarar ferðamaðurinn.
„Ok,“ segir Óli og fer yfir að erlendir leigubílstjórar séu búnir að vera að svindla á ferðamönnum lengi og nefnir sérstaklega að einn þeirra sé frá Sýrlandi.

Áskoranir til eftirlitsaðila og fjölmiðla

Taxý Hönter hefur farið fremst í flokki þeirra sem hafa ítrekað bent á þessa þróun, þar sem óhóflegt verð er sett á ferðamenn sem vita ekki betur og segir það viðgangast vegna þess að skortur á eftirliti með bransanum sé algjör.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing