96 tónlistamenn frá 14 löndum taka þátt í Global Music Match

ÚTÓN tekur þátt í nýju alþjóðalegu verkefni sem miðar að því að kynna tónlistarfólk og efla tengslanet þeirra á alþjóðavísu.

96 tónlistamenn frá 14 löndum taka þátt í Global Music Match sem er talið vera eitt stærsta tengslamyndunarverkefni í tónlistargeiranum sem fer einungis fram á netinu.

Stofnendur Global Music Match eru Sounds Australia, Showcase Scotland Expo og Canada East Coast Music Association. Samstarfsaðilar verkefnisins eru 11 útflutningsskrifstofur og tónlistarhátíðir víðsvegar að úr heiminum. Markmið verkefnisins er að kynna tónlistarfólk á alþjóðavísu og gefa þeim tækifæri til að stækka fylgjendahópinn sinn og mynda tengslanet á þessum krefjandi tímum heimsfaraldurisins.

Verkefnið er einstakt á þann hátt að það er ákveðið svar við þeim takmörkunum sem lagðar eru á tónlistariðnaðinn á tímum COVID-19. Eins og kemur fram í skýrslu um áhrif COVID-19 á íslenskan tónlistariðnað​ hefur allt tónleikahald í hefðbundinni mynd, sér í lagi erlendis, að mestu leyti lagst niður. Þetta er öðruvísi tækifæri til útflutnings á tónlist heldur en áður hefur verið og sýnir að á krefjandi tímum geta ný tækifæri myndast.

Samfélagsmiðlar og tengslanet tónlistarfólksins sem tekur þátt eru nýttir til fulls en í hverri viku mun tónlistarfólk frá hverju landi kynna annað tónlistarfólk frá öðru landi fyrir fylgjendum sínum. Tónlistarfólkið fær þá tækifæri til að fá tónlist sína kynnta fyrir alþjóðalegum áhorfendum og byggja þar með upp fylgjendahóp sinn.

Að þessu sinni er áherslan lögð á þjóðlaga- og alþýðutónlist en stefnt er að því að færa út kvíarnar yfir í aðrar tónlistarstefnur þegar fram líða stundir.

Þeir sem taka þátt frá Íslandi eru Ásgeir Ásgeirsson, hljómsveitin Brek og Svavar Knútur.

Ásgeir Ásgeirsson er gítarleikari sem á langan feril að baki, hann hefur gefið út 5 þjóðlagaplötur og síðasta platan hans sem kom út á árinu heitir Persian Path og er með íslenskum þjóðlögum sem tekin voru upp með hljóðfæraleikurum frá Íran.

Hljómsveitin Brek var stofnuð 2018 með þá áherslu að tvinna saman hina mismunandi stíla þjóðlaga- og dægurtónlistar. Brek skipa Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa, Harpa Þorvaldsdóttir syngur og leikur á píanó, Guðmundur Atli Pétursson leikur á mandólín og Jóhann Ingi Benediktsson leikur á gítar og syngur.

Svavar Knútur hefur ferðast vítt og breitt um landið sem og heiminn og sagt sögur í gegnum tónlist. Hann hefur verið vinsæll í áraraðir og hefur gefið út 5 plötur á ferli sínum.

Hér er hægt að lesa meira um ​Global Music Match​.

Auglýsing

læk

Instagram