Allir geta dansað: Eyfi og Telma send heim

Eyjólfur Kristjánsson og Telma Rut Sigurðardóttir voru send heim eftir danseinvígi í Allir geta dansað í gær.

Það var nýjung í gærkvöldi að tvö neðstu pörin dönsuðu aftur og dómarar ákváðu hvaða par skyldi halda áfram keppni. En Manuela Ósk og Jón Eyþór deildu með þeim Eyfa og Telmu Rut neðstu tveim sætunum eftir símakosninguna. Það var svo einróma samþykki dómara eftir einvígið að Manuela og Jón skyldu halda áfram.

Hér í spilaranum má sjá frammistöðu Eyfa og Telmu í gær.

Auglýsing

læk

Instagram