today-is-a-good-day

Ari Eldjárn prófar nýtt grín

Ari Eldjárn stingur hausnum aftur út í fyrsta skipti á þessum fordæmalausu tímum og prófar nýtt grín í skemmtilegri og tilraunakenndri uppistandssýningu í Tjarnarbíói.

Sumt verður lesið af blöðum, annað samið á staðnum og brandaranir verða ýmist fyndnir eða ekki. Sýningin varir í um klukkustund og hægt verður að senda inn uppástungur að efnistökum í hléi.

Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að reka augun inn á verkstæðið og sjá hvernig uppistand verður til og slípast. Hver og ein sýning er einstök. Áhorfendur upplifa atriði sem ekki verða endurtekin en sjá líka frumdrög að stærri atriðum sem verða flutt í sýningum á borð við Áramótaskopið. Missið ekki af áhugaverðri tilraun þar sem allt fær að fljúga!

Sýningar hefjast þann 13. júní og fer miðasala fram hér

Auglýsing

læk

Instagram