today-is-a-good-day

Bláa Lónið opnar á ný

Bláa Lónið opnar dyrnar á ný á morgun, laugardag, eftir rúmlega fjögurra mánaða lokun.

Í tilkynningu segir að veitingastaðurinn Lava verði einnig opinn allar helgar og verður boðið upp á brunch alla laugardaga og sunnudaga. Einnig verður opið í heilsulindinni Retreat Spa á laugardögum. Þá opnar Retreat hótel aftur ásamt veitingastaðnum Moss, en þó með takmörkuðum opnunartíma.

Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Bláa Lónsins.

Auglýsing

læk

Instagram