today-is-a-good-day

Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum innanlands

Í dag, 18. mars, tóku í gildi breytingar á sóttvarnaráðstöfunum vegna Covid-19.

Þessar breytingar fela fyrst og fremst í sér auknar kröfur um skráningu gesta og smitgát í tengslum við viðburði. Þá eru einnig gerðar ríkari kröfur til sóttvarnaráðstafana þar sem boðið er upp á hlaðborð. Gildistími reglugerðar um þessar breytingar er til 9. apríl næstkomandi.

Breytingar sem tóku í gildi í dag, 18. mars

Allir gestir skráðir: Á öllum viðburðum, svo sem í athöfnum trú- og lífsskoðunarfélaga, sviðlistar-, menningar og íþróttaviðburðum, ráðstefnum, fyrirlestrum og sambærilegum viðburðum, skulu gestir skráðir í númeruð sæti og teknar niður upplýsingar um nafn, kennitölu og símanúmer hvers og eins.

Engar veitingar í hléi: Óheimilt er að selja eða bjóða veitingar í hléi á viðburðum og skulu gestir beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum sínum.

Engin blöndun milli sóttvarnahólfa: Sem fyrr mega 200 gestir sitja í hólfi á viðburðum. Fyrir og eftir viðburð og í hléi skulu skipuleggjendur viðburða tryggja að ekki komi fleiri saman en 50 manns þar sem gætt skal að tveggja metra reglu og grímunotkun ef ekki er hægt að tryggja nándarmörk. (Uppfært)

Hlaðborð: Áfram verður heimilt að bjóða upp á hlaðborð en gestum gert skylt að sótthreinsa hendur áður en þeir sækja sér mat á hlaðborðið og einnig að því loknu, auk þess sem þeir þurfa að bera grímu og gæta að 2 metra nálægðarmörkum.

Auglýsing

læk

Instagram