Einn heppinn miðahafi með allar Jókertölurnar í réttri röð

Heppinn Dani var einn með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld og fær hann að launum rúmlega 7,4 milljarða. Tveir Þjóðverjar voru með 2. vinning og hlýtur hvor þeirra rúmlega 181 milljón króna. Sex skiptu með sér 3. vinningi og fá þeir rúmar 21 milljóni hver. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi, en hinir voru keyptir Svíþjóð, Póllandi og Danmörku.

Þá var einn heppinn miðahafi með allar Jókertölurnar í réttri röð og hlýtur hann 2 milljónir króna í vinning. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. Annar miðinn var keyptur í Krambúðinni á Akureyri og hinn á lotto.is

Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 5.592

Auglýsing

læk

Instagram