Einn með fyrsta vinning og hlýtur rúma tvo milljarða

Sænskur miðahafi datt heldur betur í lukkupottinn í EuroJackpot því hann var einn með 1. vinning og hlýtur 2.156 milljón  króna. Enginn var með 2. vinning, en sex miðahafar skiptu með sér 3. vinningi og fá þeir rúmar 18 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Danmörku og fjórir í Þýskalandi.

Þrír voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru allir keyptir á Lotto.is.

Auglýsing

læk

Instagram