Erlendir aðilar fengnir til að skoða kosti og galla íslensku krónunnar: „Hvað er það sem menn eru hræddir við“

Starfsgreinasamband Ísland samþykkti ályktun á dögunum þess efnis að óháðir erlendir aðilar verði fengnir til að skoða kosti og galla íslensku krónunnar sem og kosti og galla þess að taka upp annan gjaldmiðil.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness,  tjáði sig um gjaldeyrismálin í gærkvöldi á síðu sinni, en af þessu verður munu verkalýðshreyfingin og Samtök atvinnulífsins ráðast í slíka óháða úttekt. Vilhjálmur bendir á að á sama tíma og ályktunin var samþykkt hafi niðurstöður könnunar hjá Reykjavík síðdegis á Bylgjunni gefið til kynna ríkan vilja almennings til að ráðast í slíka úttekt.

„Í þessari könnun hjá Reykjavík síðdegis sem tæplega 4400 manns tóku þátt í voru 81,1% sammála að fá erlenda aðila til taka út kosti og galla íslensku krónunnar,“ segir Vilhjálmur og bætir við að fróðlegt verði að sjá hvort Samtök atvinnulífsins séu ekki sammála að verkalýðshreyfingin og Samtök atvinnulífsins sjái um að úttektin verði að veruleika.

Fjölmargir hafa tjáð sig undir færslu Vilhjálms og fagna margir tillögunni. Einn spyr þó hvers vegna Ísland ætti ekki að notast við sjálfstæðan gjaldmiðil og bendir á að erlendum sérfræðingum komi ekkert við hvort Ísland haldi sjálfstæði sínu þegar kemur að gjaldmiðla- og peningamálum.

Vilhjálmur svarar því til að ef viðkomandi hefur rétt fyrir sér muni það væntanlega koma fram í slíkri úttekt. „Hvað er það sem menn eru hræddir við,“ spyr Vilhjálmur.

„Samstarf aðila vinnumarkaðarins hvað það varðar mun gefa slíkri úttekt á gjaldmiðlamálum okkar Íslendinga mun meiri vigt og slagkraft.“

„Hver getur verið á móti því að fá virta óháða erlenda aðila til að kanna kosti og galla krónunnar og kosti og galla þess að taka upp annan gjaldmiðil þar sem allt verði undir. Ef Samtök atvinnulífsins vilja ekki verða við þessari beiðni verkalýðshreyfingarinnar er ljóst að SA er að verja sérhagsmuni á kostnað almennings.“

Auglýsing

læk

Instagram