Fimm skiptu með sér bónusvinningnum

Enginn var með allar tölur réttar í Lottó útdrætti vikunnar og verður potturinn því fimmfaldur í næstu viku.

Fimm skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra tæpar 159 þúsund krónur . Miðarnir voru keyptir í Prinsinum Þönglabakka í Reykjavík, einn miðinn var í áskrift og þrír miðanna voru keyptir í Lottó appinu.

Tveir heppnir miðahafar voru með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og hlýtur hvor þeirra 2 milljónir króna í vinning. Annar miðinn var keyptur í Fjarðarkaup í Hafnarfirði og hinn miðinn var keyptur í Hagkaup í Skeifunni í Reykjavík.

Þá voru sex miðahafar með fjórar réttar tölur í réttri röð og fá fyrir það 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir á N1 við Hringbraut í Reykjavík, Fjarðarkaup í Hafnarfirði, á N1 við Lækjargötu í Hafnarfirði, einn miðinn var í áskrift og tveir miðanna voru keyptir á heimasíðunni lotto.is.

Auglýsing

læk

Instagram