Frumsýna söngleikinn Vorið vaknar

Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn Vorið vaknar á föstudaginn næsta. Þetta kemur fram á vef Rúv

„Þetta verk fjallar um unglinga á 19. öld sem eru að vakna til meðvitundar um sína kynvitund í þjóðfélagi þöggunar,“ segir Marta Nordal, leikstjóri verksins. „Þeim er haldið fáfróðum um þessar sterku tilfinningar og það veldur óróa og kvíða og alls kyns hvötum hjá þessum krökkum. Þetta fjallar um vald og valdleysi og ofbeldi, sem á við á öllum tímum.“

Vorið vaknar er byggt á samnefndu leikriti Frank Wedekind frá 1891. Marta Nordal leikstýrir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er tónlistarstjóri og Lee Proud sér um dans og hreyfingar.

Haldnar voru opnar áheyrnarprufur og tekur fjöldi ungra leikara þátt í sýningunni.

„Við völdum úr stórum hópi og það er fullt af ungum leikurum sem eru að stíga sín fyrstu skref þannig að það er líka ofsalega gaman að geta gefið þeim tækifæri, mér finnst það sérstaklega skemmtilegt.“

„Það er geggjað að fá svona mikið að gera, við erum að syngja og við erum dansa og leika. Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt og gefandi, sérstaklega gott að vera á Akureyri. Við erum bara hér að einbeita okkur að þessu verkefni, búum saman og erum mjög náin.“

Í aðalhlutverkum eru Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir.

Auglýsing

læk

Instagram