Frumsýning á verðlaunamyndinni Chasing the Present

Verðlaunamyndin Chasing the Present verður frumsýnd á Íslandi sunnudaginn 8. mars kl. 20 í Bíó Paradís. Þetta kemur fram á vef albumm.is

Chasing the Present heimildamynd það sem við fylgjum James Sebastiano í baráttu sinni við kvíðaröskun. Myndin er tekin upp í Bandaríkjunum, Indlandi, Íslandi og Perú, og inniheldur m.a. viðtöl við Russell Brand og Marina Abramovic. Myndin hlaut árið 2019 verðlaun sem besta heimildamyndin á Rhode Island International Film Festival og Chelsea Film Festival, ásamt Grand Jury Prize á Awareness Film Festival.

Tónlistin í myndinni er eftir Snorra Hallgrímsson, en myndin inniheldur einnig tvö lög eftir Ólaf Arnalds. Aðalpersóna myndarinnar James Sebastiano og leikstjóri hennar Mark Waters verða báðir viðstaddir sýninguna, og munu ásamt Snorra svara spurningum áhorfenda að sýningu lokinni.

Miðaverð er 1600 kr. – miðar eru seldir við hurð og í forsölu á tix.is

 

Auglýsing

læk

Instagram