Jarðarförin mín – Sjáðu fyrstu stikluna!

Hér er á ferðinni ljúfsár en alvörugefin sex þátta sería um mann sem greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun.

Hann hefur eytt síðustu áratugunum í tilgangslausa rútínu, fjarlægst fjölskyldu sína og ekki lifað lífinu sem skildi. Nú eru tvær vikur áður en hann fer í skurðaðgerð sem mun að öllum líkindum draga hann til dauða. Hann ákveður að bæta upp fyrir tapaðan tíma með því að halda sína eigin jarðarför og vera sjálfur viðstaddur.

Það er samt ekki eins einfalt og það hljómar. Fyrrverandi eiginkonan, einkasonurinn og tengdadóttirin hafa lítinn skilning fyrir þessum áformum, hvað þá barnabarnið sem dýrkar afa sinn og getur ekki hugsað sér að missa hann. Svo flækist málið enn frekar þegar ástin blómstrar á ný milli hans og fyrrverandi kærustu en hún er einmitt presturinn sem á að jarðsyngja hann.

Framleidd af Glassriver Productions

Hugmynd: Jón Gunnar Geirdal

Leikstjóri: Kristófer Dignus

Handritshöfundar: Kristófer Dignus, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Jón Gunnar Geirdal, Ragnar Eyþórsson, Sóli Hólm og Baldvin Z.

 

Jarðarförin mín kemur í heild sinni inn í Sjónvarp Símans Premium um Páskana.

Auglýsing

læk

Instagram